InnskráningInnskráning
Hafiði lent í svipuðum aðstæðum
Fara á blaðsíðu Fyrra  1, 2
 
Senda inn nýjan spjallþráð   Senda svar á spjallþráð    Forsíða -> Umræður -> Almenn umræða
Sjá síðustu spjallþræði :: Sjá næstu spjallþræði  
Höfundur Skilaboð
ófelia


Skráður þann: 05 Ágú 2007
Innlegg: 284
Staðsetning: Reykjavík
Canon 450D og gömul filmuvél Braun Trend Zoom 115-CF
InnleggInnlegg: 01 Ágú 2010 - 0:53:28    Efni innleggs: Svara með tilvísun

karlg skrifaði:
Ég mæli með því að fólk kynni sér ljósmyndir helstu nafnanna í götuljósmyndun áður en það myndar sér skoðun. Þegar þið hafið kíkt á myndirnar mæli ég með heimsókn á Youtube og kíkja á myndbönd af þessum mönnum að taka myndirnar sínar. Þrjú nöfn myndu sýna mjög ólík vinnubrögð manna sem eru eiginlega innan sama flokks ljósmyndunar: Garry Winogrand, Bruce Gilden og Joel Meyerowitz.

Í stuttu máli er Winogrand trúðurinn (hann lætur eins og hann kunni ekkert þótt hann hafi verið hreint ótrúlegur), Meyerowitz er ninjan (hann tekur myndir uppvið fólk og það virðist bara varla taka eftir honum) og Gilden er skíthællinn. Þið áttið ykkur á því af hverju ég segi þetta um Gilden ef þið kíkið á myndbönd af honum að taka myndir með flassi í New York.


Vá, takk fyrir þetta. Mjög áhugavert!
_________________
The mind is like a parachute. It doesn’t work unless it’s open.
Til baka efst á síðu
Skoða notanda Senda einkapóst Senda póst Heimsækja heimasíðu sendanda
 Whistler


Skráður þann: 05 Apr 2010
Innlegg: 315
Staðsetning: Bak við linsuna
Canon 10D + 40D + 500N & Kodak P850
InnleggInnlegg: 01 Ágú 2010 - 1:33:47    Efni innleggs: Svara með tilvísun

Össs - held að ég falli undir Gilden en lögin hérna segja að það megi ljósmynda hvað sem er hvenær sem er, nema á einkaheimilum fólks, lökuðum svæðum lögreglu eða einkasvæðum (s.s. smáralind eða kringlan)...án leyfis þ.e.a.s.

Spyr sjaldan, en ef ég sé einhvern áhugaverðan/áhugaverða sem ég er ekki viss með reyni ég að ná augnacontacti, hreyfi vélina aðeins og ef viðkomandi kinkar kolli við því að ljósmynda þá hleypi ég af.

Þrátt fyrir "Gilden" stílinn, þá sýnir maður sumum tillit, það bara er eitthvað sem maður finnur hjá sér að er rétt að gera.

Einu sem fá enga miskun linsunnar eru stjórnmálamenn og útrásarvíkingar - enda opinberar persónur.
_________________
.
"Algunhas persoas, sen nomes, deben aprender a calar a boca e tentar aprender algunha interacción humana."
Til baka efst á síðu
Skoða notanda Senda einkapóst Heimsækja heimasíðu sendanda
bogulo


Skráður þann: 30 Jan 2005
Innlegg: 2145
Staðsetning: Milli steins og sleggju
Canon
InnleggInnlegg: 01 Ágú 2010 - 3:53:09    Efni innleggs: Svara með tilvísun

Mér fannst fátt skemmtilegra en að fara niður í bæ í München meðan ég bjó þar, rölta um og bíða eftir áhugaverðum aðstæðum eða fólki og smella myndum af því. Upplifunin af stað og stund verður mun sterkari og maður er mjög vakandi fyrir smáatriðum í fasi fólks og klæðaburði. Skemmtilegast við þetta er líka að reyna að sjá fyrir skemmtilegar aðstæður og vera tilbúinn með myndavélina.
Þetta er aðeins erfiðara hér á landi finnst mér og þá vegna þess að það eru einfaldlega svo fáir á ferli. Rölt upp Laugaveginn getur vel gefið af sér skemmtileg augnablik en þau gerast sjaldnar.

En varðandi það að taka myndir af fólki er ekki gaman að því nema að það viti ekki af því, þ.e. að fólk stilli sér ekki upp. Maður þarf heldur ekkert að vera lengi að því að smella af ef maður er með 50 mm kvikindi framan á vélinni. Þá tekur enginn eftir manni og maður veit alveg hvernig ramminn verður þegar maður kíkir í gegn.
_________________
17-40 f4L|200 f2.8L|50mm f1.8II|MA 190PROB+488RC2|580EX
Til baka efst á síðu
Skoða notanda Senda einkapóst Heimsækja heimasíðu sendanda
Sergio


Skráður þann: 04 Nóv 2006
Innlegg: 868
Staðsetning: Þorlákshöfn
Canon
InnleggInnlegg: 01 Ágú 2010 - 4:31:56    Efni innleggs: Svara með tilvísun

smella bara af, ef einhver fer vera með vesen þá bara öskra "HAHA OFSEINT" og hlaupa í burtu Laughing
_________________
Canon EOS 5D Mark II | EOS 500D | EOS 600 | AE-1 Program
17-40 f/4L USM | 50 f/1.8 II | LEE
Flickr

Til baka efst á síðu
Skoða notanda Senda einkapóst Heimsækja heimasíðu sendanda MSN-skilaboð
karlg


Skráður þann: 09 Okt 2007
Innlegg: 5982
Staðsetning: Sverige
Minolta Autocord
InnleggInnlegg: 01 Ágú 2010 - 8:37:31    Efni innleggs: Svara með tilvísun

Whistler skrifaði:
Össs - held að ég falli undir Gilden en lögin hérna segja að það megi ljósmynda hvað sem er hvenær sem er, nema á einkaheimilum fólks, lökuðum svæðum lögreglu eða einkasvæðum (s.s. smáralind eða kringlan)...án leyfis þ.e.a.s.


Munurinn á Gilden, ef við horfum framhjá afurðinni – ljósmyndunum, og Winogrand er ekki svo mikið hvað þeir gera heldur hvernig þeir gera það. Það er jafnskrítið að Gilden hafi ekki valdið hjartaáfalli eins og að hann hafi aldrei verið barinn. Winogrand tekur líka myndir af fólki með gleiðlinsu en hann er bara ekki svona bölvaður skíthæll þegar hann gerir það Smile

Kannski orðum aukið að kalla Gilden skíthæl samt. Ég hef oftast diskúterað hann á ensku og ég held að orðið dick komi oftast upp þá Smile

bogulo skrifaði:
En varðandi það að taka myndir af fólki er ekki gaman að því nema að það viti ekki af því, þ.e. að fólk stilli sér ekki upp. Maður þarf heldur ekkert að vera lengi að því að smella af ef maður er með 50 mm kvikindi framan á vélinni. Þá tekur enginn eftir manni og maður veit alveg hvernig ramminn verður þegar maður kíkir í gegn.


Það getur verið mjög gaman að fólk viti af manni. Munurinn á milli þess að mynd virki og virki ekki getur verið að augnkontakt við einhvern í myndinni.

En auðvitað reynir maður alltaf að láta fólk ekki taka eftir sér venjulega.

Talandi um augnkontakt hins vegar er ég með tvö dæmi þar sem einhver í myndinni tekur eftir því hvað ég er að gera. Þetta eru ekkert sérstakar myndir en ættu að virka sem dæmi:

Sweet Lullaby

Moosemen of Drottninggatan

Í fyrri myndinni var ég bara að rölta framhjá, vísvitandi reyndar því ég vildi taka mynd af gaurunum, og greip tækifærið að hafa konuna með barnavagninn með í myndinni. Hún sá strax hvað ég var að gera og setti upp þetta fína bros fyrir mig. Það gjörbreytir myndinni en skemmir hana ekki nema síður sé.

Í seinni myndinni hins vegar sá ég gaurana á færi og þurfti að vera snöggur að komast á góðan stað til að ná mynd af þeim. Þannig að ég skundaði beint fyrir þá og ekki séns annað en þeir myndu taka eftir því. Það var líka bara betra held ég.
_________________
FlickrTenset1/125

Karl Gunnarsson, landslagsljósmyndari
Til baka efst á síðu
Skoða notanda Senda einkapóst Heimsækja heimasíðu sendanda AIM-vistfang MSN-skilaboð
sindri skarph


Skráður þann: 30 Des 2009
Innlegg: 66
Staðsetning: Hafnarfjörður
Canon EOS 1D Mark II
InnleggInnlegg: 02 Ágú 2010 - 7:12:39    Efni innleggs: Svara með tilvísun

mér fynst rosalega gaman að taka myndir af fólki þegar það veit ekki af því , ég var fyrst svoldið smeikur við það fyrst en hika ekki við það núna.
það breytist þegar ég var eitt sinn i London , þar hugsaði ég með mér "hér eru þúsundir manns að taka myndir afhverju má ég ekki taka myndir af því sem mig langar til". eftir það byrjaði vitleysan
ég var eitt sinn í camden þar sem ég sat úti á kaffihúsi , þar hafði ég góða sýn upp þröngan stíg og tók nokkrar myndir af fólki sem labbaði þar niður.



fleiri hér ef eitthver vill skoða
http://www.flickr.com/photos/sindriskarp/sets/72157623271364536/

ég gerði þetta oft þegar ég var búsettur í Noregi , en þá var ég offtast á bíl sem gerði þetta svoldið njósna og laumulega hér en ein mynd sem ég náði af ungu pari á labbi


ég þakka svo fyrir ábendingun um þessa ljósmyndara sem nefndir voru fyrr í þræðinum
_________________
http://www.flickr.com/photos/sindriskarp/
Til baka efst á síðu
Skoða notanda Senda einkapóst
Arnþór


Skráður þann: 10 Feb 2005
Innlegg: 1712
Staðsetning: Hafnafjörður
Það sem hendi er næst
InnleggInnlegg: 02 Ágú 2010 - 8:30:57    Efni innleggs: Svara með tilvísun

Ég held að þú stjórnir viðbrögðum fólks við því að þú sért að taka myndir af því niðri í bæ með því hvernig þú berð þig.
Maður á bara að vera ákveðinn, sjá hlutina og smella af, halda svo áfram.
Ef einhver horfir á mann grymmum augum þá horfir maður bara ákveðið tilbaka.
Ég get ekki talið það hversu oft maður hefur verið að mynda mannlífsmyndir og ég man ekki eftir mörgum sem hafa komið með einhverjar athugasemdir.
_________________
http://www.arnthorb.com
Til baka efst á síðu
Skoða notanda Senda einkapóst Heimsækja heimasíðu sendanda MSN-skilaboð
eMilk


Skráður þann: 12 Feb 2009
Innlegg: 691
Staðsetning: Álftanes

InnleggInnlegg: 02 Ágú 2010 - 12:56:10    Efni innleggs: Svara með tilvísun

Ég hef nú smá pælingu, ef ég sæi mann úti (á almannafæri), afhverju ætti að vera í ólagi að mynda hann þar sem allir gætu séð hann hvort eð er?

Ég meina, almannafæri er sá staður sem öllum mönnum eru færir, hvaðan sem þeir koma og hvað þeir eru að gera.

En staðir inni í t.d. svæði sem er ekki aðgengilegt almenning skil ég vel að fólk vilji ekki vera myndað. Eins og t.d. í lokuðum hverfum í m.a. Bandaríkjunum, sem ég veit að eru fullt af...
_________________
Canon EOS 50D
EF 35mm f/1.4L
EF 50mm f/1.8 II


Flickr/emilorn
Til baka efst á síðu
Skoða notanda Senda einkapóst Senda póst Heimsækja heimasíðu sendanda
robbinn
Keppnisráð


Skráður þann: 20 Mar 2005
Innlegg: 1457
Staðsetning: Reykjavík
Canon EOS 350D
InnleggInnlegg: 02 Ágú 2010 - 17:40:50    Efni innleggs: Svara með tilvísun

eMilk skrifaði:
Ég hef nú smá pælingu, ef ég sæi mann úti (á almannafæri), afhverju ætti að vera í ólagi að mynda hann þar sem allir gætu séð hann hvort eð er?

Ég meina, almannafæri er sá staður sem öllum mönnum eru færir, hvaðan sem þeir koma og hvað þeir eru að gera.

En staðir inni í t.d. svæði sem er ekki aðgengilegt almenning skil ég vel að fólk vilji ekki vera myndað. Eins og t.d. í lokuðum hverfum í m.a. Bandaríkjunum, sem ég veit að eru fullt af...


Það er kannski ágætt að setja sig í fótspor þess sem myndin er tekin af. Persónulega þykir mér ekkert þægilegt að láta stara á mig og hvað þá í gegnum kíkir eða myndavél. Spurningin "afhverju er hann að taka myndir af mér?" vaknar eflaust hjá flestum og ég myndi líklega vilja vita í hvað myndin ætti að fara. Ég hef að sjálfsögðu tekið mannlífsmyndir og hef oftar en ekki notað "Ninju" aðferðina við það Smile
_________________
http://www.robbinn.com
Til baka efst á síðu
Skoða notanda Senda einkapóst Senda póst Heimsækja heimasíðu sendanda
karlg


Skráður þann: 09 Okt 2007
Innlegg: 5982
Staðsetning: Sverige
Minolta Autocord
InnleggInnlegg: 02 Ágú 2010 - 19:56:05    Efni innleggs: Svara með tilvísun

robbinn skrifaði:
Ég hef að sjálfsögðu tekið mannlífsmyndir og hef oftar en ekki notað "Ninju" aðferðina við það Smile


Ósýnilegur og úr návígi?
_________________
FlickrTenset1/125

Karl Gunnarsson, landslagsljósmyndari
Til baka efst á síðu
Skoða notanda Senda einkapóst Heimsækja heimasíðu sendanda AIM-vistfang MSN-skilaboð
robbinn
Keppnisráð


Skráður þann: 20 Mar 2005
Innlegg: 1457
Staðsetning: Reykjavík
Canon EOS 350D
InnleggInnlegg: 02 Ágú 2010 - 19:59:41    Efni innleggs: Svara með tilvísun

karlg skrifaði:
robbinn skrifaði:
Ég hef að sjálfsögðu tekið mannlífsmyndir og hef oftar en ekki notað "Ninju" aðferðina við það Smile


Ósýnilegur og úr návígi?


Neibb ekki alveg Wink Meira svona sýnilegur og úr fjarlægð Very Happy
_________________
http://www.robbinn.com
Til baka efst á síðu
Skoða notanda Senda einkapóst Senda póst Heimsækja heimasíðu sendanda
Sýna innlegg frá síðasta:   
Senda inn nýjan spjallþráð   Senda svar á spjallþráð    Forsíða -> Umræður -> Almenn umræða Allir tímar eru GMT
Fara á blaðsíðu Fyrra  1, 2
Blaðsíða 2 af 2

 
Fara til:  
Þú getur ekki sent inn nýja spjallþræði á þessar umræður
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum
Þú getur ekki breytt innleggi þínu á þessum umræðum
Þú getur ekki eytt innleggjum þínum á þessum umræðum
Þú getur ekki tekið þátt í kosningum á þessum umræðum


Powered by phpBB © 2001, 2005 phpBB Group