| Sjá síðustu spjallþræði :: Sjá næstu spjallþræði |
| Höfundur |
Skilaboð |
| Hauxon
| 
Skráður þann: 07 Des 2005 Innlegg: 4844 Staðsetning: Skipaskagi Canon EOS 1Ds MKII
|
|
Innlegg: 30 Júl 2010 - 15:30:56 Efni innleggs: |
|
|
| Marel skrifaði: | | Völundur skrifaði: | | Marel skrifaði: | | Á hann ekki að vera dimmrauður, eða jafnvel þannig að hann blokki út allt sýnilegt ljós? Eða á það bara við innrauða myndatöku á filmu? |
Já, sko, það er náttúrulega IR filter í vélinni eftir að ég reif hana í frumeindir og tók gamla glerið úr. Ef ég skil Hauxon rétt, þá er hann að tala um að bæta við filter framaná til þess að fá meiri kontrast í bláa liti. |
Já, filterinn á sensornum skilur innrautt ljós frá, svo sýnilega ljósið komi eðlilega fram sem mynd. En þegar hann hefur verið fjarlægður skynjar hún bæði innrauðar og sýnilegar bylgjulengdir ljóss, þess vegna þarf dimmrauðan filter framan á linsuna til að skynjarinn nemi eingöngu innrauðu bylgjurnar. Eða settirðu auka filter framan á sensorinn inn í vélina? |
Gulur filter blokkar út blátt ljós, djúprauður gengur lengra eftir litrófinu. Þ.e. liturinn á filternum eyðir út andstæðum lit. Þegar um svart-hvíta myndatöku er að ræða dekkjast andhverfir litir og auka þannig kontrast í myndinni.
Hér er mynd sem sýnir andhvrfa liti.
Hér má sjá litrófið og við hvaða bylgjutíðnir maður getur miðað. T.d. sker gulur filter litrófið af í kringum 500 nm.
Hér er svo meira fræðsluefni ef fólk nennir að lesa.
http://www.schneiderkreuznach.com/tipps/sw_fotografie_e.htm _________________
Hrannar Örn Hauksson
Canon 1Ds Mark II | Konica C35 | Yashica FX-D | Mamiya 7 |
|
| Til baka efst á síðu |
|
 |
| Völundur
| 
Skráður þann: 01 Des 2004 Innlegg: 10873
|
|
Innlegg: 30 Júl 2010 - 15:56:15 Efni innleggs: |
|
|
Þetta er flott, takk fyrir upplýsingarnar. En hvernig fannst ykkur myndin?  _________________ - Spurðir þú þig spurninga í morgun? |
- Les photos des Völundes
- stuck in photos |
|
| Til baka efst á síðu |
|
 |
| Marel
| 
Skráður þann: 25 Maí 2009 Innlegg: 212
Great Wall DF2, Canon AE-1 Program
|
|
Innlegg: 30 Júl 2010 - 16:05:54 Efni innleggs: |
|
|
Ja, satt best að segja er ég ekkert yfir mig hrifinn. Mér finnst þú hafa misst þig aðeins í shadows/highlights og svo vantar þennan IR effect, sumsé svelldökkan (heiðskýran) himinn (sem er vissulega erfitt að ná fram ef það er skýjað...) og svo hvíta litinn á laufskrúð trésins. Ég held að niðurstaðan yrði betri með rauðum filter.
Mig hefur lengi langað til að prófa innrauða filmu, en ekki gert ennþá af því að mig vantar filterinn, en það sem heillar mig við þessa tegund ljósmyndunar eru tónaskalar á borð við það sem sést í þessari mynd: http://www.flickr.com/photos/rob_birze/4255746458/ Það er eins og þín mynd sé ekki nógu kontrasteruð eða eitthvað, ég kann ekki alveg að koma orðum að því. Hins vegar hentar viðfangsefnið vel og með örlítið betri tæknilegri útfærslu (plús hentugri veðurskilyrði) muntu fá reglulega eigulega mynd á þessum stað. _________________ Flickrið mitt |
|
| Til baka efst á síðu |
|
 |
| Völundur
| 
Skráður þann: 01 Des 2004 Innlegg: 10873
|
|
Innlegg: 30 Júl 2010 - 16:24:55 Efni innleggs: |
|
|
| Marel skrifaði: | Ja, satt best að segja er ég ekkert yfir mig hrifinn. Mér finnst þú hafa misst þig aðeins í shadows/highlights og svo vantar þennan IR effect, sumsé svelldökkan (heiðskýran) himinn (sem er vissulega erfitt að ná fram ef það er skýjað...) og svo hvíta litinn á laufskrúð trésins. Ég held að niðurstaðan yrði betri með rauðum filter.
Mig hefur lengi langað til að prófa innrauða filmu, en ekki gert ennþá af því að mig vantar filterinn, en það sem heillar mig við þessa tegund ljósmyndunar eru tónaskalar á borð við það sem sést í þessari mynd: http://www.flickr.com/photos/rob_birze/4255746458/ Það er eins og þín mynd sé ekki nógu kontrasteruð eða eitthvað, ég kann ekki alveg að koma orðum að því. Hins vegar hentar viðfangsefnið vel og með örlítið betri tæknilegri útfærslu (plús hentugri veðurskilyrði) muntu fá reglulega eigulega mynd á þessum stað. |
Þetta er rétt. Takk fyrir. _________________ - Spurðir þú þig spurninga í morgun? |
- Les photos des Völundes
- stuck in photos |
|
| Til baka efst á síðu |
|
 |
| Hauxon
| 
Skráður þann: 07 Des 2005 Innlegg: 4844 Staðsetning: Skipaskagi Canon EOS 1Ds MKII
|
|
Innlegg: 30 Júl 2010 - 16:35:34 Efni innleggs: |
|
|
Það er auðvelt að detta inn í tækniatriðin og gleyma aðalatriðinu.
Ég er sammála Marel að það vanti kontrast í hana. Prófaði að fara í PS og tók út sepiatóninn og auto-levels gerði hana strax betri. Myndefnið er gott og örugglega hægt að kreista meira úr því. Hvar er þetta?
Hrannar _________________
Hrannar Örn Hauksson
Canon 1Ds Mark II | Konica C35 | Yashica FX-D | Mamiya 7 |
|
| Til baka efst á síðu |
|
 |
| Völundur
| 
Skráður þann: 01 Des 2004 Innlegg: 10873
|
|
Innlegg: 30 Júl 2010 - 16:55:37 Efni innleggs: |
|
|
Takk fyrir Hrannar. Ég ætla að setja mig í gírinn fljótlega og skoða þetta.
Þetta er við Ljótsstaði, innarlega í Laxárdalnum (Laxá í Aðaldal). Myndin er af trjálínu sem hefur staðið vestan við gamlan bæ, ég er ekki viss um það hvort þetta er gamla bæjarhúsið á Ljótsstöðum, en mig grunar það nú samt.
Til glöggvunar, þá sést steinsteypt hús á miðri myndinni, Laxá liggur í botni dalsins, og vegurinn sem sést í hægra meginn á myndinni liggur upp á heiðina sem þjóðvegur eitt rennur um framhjá Másvatni.
Það er mjög gaman að koma þarna, til dæmis er garðurinn aftan við tóftirnar af gamla bænum fullur af kúmeni, dilli (sólselja held ég það sé kallað), og einhverjar fleiri kryddjurtir sem ég þekkti ekki. Grasið þarna er allt úr sér vaxið og greinilega lítið beitt á þetta.
Það er svolítið fyndið reyndar að ég er á myndinni (ligg þarna í grasinu, en sést eiginlega ekkert) og Danni Kýrauga og Helga eru uppi á torfhleðslunni.
En já, takk aftur fyrir pælingarnar, mjög gagnlegt. _________________ - Spurðir þú þig spurninga í morgun? |
- Les photos des Völundes
- stuck in photos |
|
| Til baka efst á síðu |
|
 |
| gummio
| 
Skráður þann: 12 Maí 2008 Innlegg: 586 Staðsetning: Reykjavík Canon 5D Mark II
|
|
|
| Til baka efst á síðu |
|
 |
| zepplinn
| 
Skráður þann: 29 Jan 2008 Innlegg: 1094 Staðsetning: Reykjavík Canon 450 D
|
|
|
| Til baka efst á síðu |
|
 |
| robbinn Keppnisráð | 
Skráður þann: 20 Mar 2005 Innlegg: 1457 Staðsetning: Reykjavík Canon EOS 350D
|
|
Innlegg: 31 Júl 2010 - 18:59:27 Efni innleggs: |
|
|
Mér finnst nú bara merkilegt að þú hafir fundið tré í þessa mynd Myndin er fín. _________________ http://www.robbinn.com |
|
| Til baka efst á síðu |
|
 |
| Micaya
| 
Skráður þann: 17 Des 2009 Innlegg: 931 Staðsetning: Rvk Endar á N
|
|
Innlegg: 31 Júl 2010 - 19:43:48 Efni innleggs: |
|
|
Ég hef oft sagt erlendum ferðamönnum að það finnst ekki eitt einasta tré á Íslandi sem er ekki við mannbygð.
Hérna er eitt! Menn fóru, en tréð/trén urðu eftir...
Þú sagðir: "af trjálínu sem hefur staðið vestan við gamlan bæ"
Töff mynd!  _________________ http://www.flickr.com/photos/44475334@N02/
"The camera always points both ways. In expressing your subject, you also express yourself" Freeman Patterson |
|
| Til baka efst á síðu |
|
 |
|
Innlegg: 01 Ágú 2010 - 7:22:23 Efni innleggs: |
|
|
| Völundur skrifaði: | Þetta er við Ljótsstaði, innarlega í Laxárdalnum (Laxá í Aðaldal). Myndin er af trjálínu sem hefur staðið vestan við gamlan bæ, ég er ekki viss um það hvort þetta er gamla bæjarhúsið á Ljótsstöðum, en mig grunar það nú samt.
Til glöggvunar, þá sést steinsteypt hús á miðri myndinni, Laxá liggur í botni dalsins, og vegurinn sem sést í hægra meginn á myndinni liggur upp á heiðina sem þjóðvegur eitt rennur um framhjá Másvatni. |
Mig grunar að þetta sé Þverársel, allavega er í málsgrein í gömlu dokkjúmenti sagt:
"Þau fluttu 1810 í Þverársel í Laxárdal. Sá bær stóð nær mitt á milli Auðna og Ljótsstaða, á hjalla einum er stóð í miðri brekku."
Mér finnst myndin mjög skemmtileg og pælingarnar á bak við tæknina fróðlegar, þarna er gott dæmi um aðstæður þar sem innrautt skilar mjög skemmtilegum niðurstöðum meðan hefðbundið ljós er frekar flatt.
Ég held að filterapælingarnar gætu gagnast en mér finnst líka að þú getir dregið fram margt skemmtileg með vinnslu með því að vinna himinn og jörð sérstaklega. Til dæmis má draga betur fram svarta litinn og svona, auka kontrastinn og dekkja grasið og svona. Bara dútl með kaffibolla.
Ein spurning, færðu myndina í lit úr vélinni? |
|
| Til baka efst á síðu |
|
 |
| Völundur
| 
Skráður þann: 01 Des 2004 Innlegg: 10873
|
|
Innlegg: 01 Ágú 2010 - 17:39:06 Efni innleggs: |
|
|
Takk fyrir upplýsingarnar Danni. Þverársel hljómar ekki ósennilega, sérstaklega ekki ef maður hugsar um það hvað þétt er á milli bæja þarna. Reyndar er skrítið að þetta sé ekki á atlaskortunum.
Myndirnar koma alveg eldrauðar úr vélinni! _________________ - Spurðir þú þig spurninga í morgun? |
- Les photos des Völundes
- stuck in photos |
|
| Til baka efst á síðu |
|
 |
|
Innlegg: 01 Ágú 2010 - 19:26:58 Efni innleggs: |
|
|
| Völundur skrifaði: | | Takk fyrir upplýsingarnar Danni. Þverársel hljómar ekki ósennilega, sérstaklega ekki ef maður hugsar um það hvað þétt er á milli bæja þarna. Reyndar er skrítið að þetta sé ekki á atlaskortunum. |
Haha, en það er nefnilega merkt... það heitir bara Mánahjalli líka, eða eins og hefði komið í ljós hefði ég afritað stærri textabút:
"Selið var hjáleiga frá Þverá, en gekk einnig undir nafninu Mánahjalli"
| Völundur skrifaði: | | Myndirnar koma alveg eldrauðar úr vélinni! |
Snilld! |
|
| Til baka efst á síðu |
|
 |
| zepplinn
| 
Skráður þann: 29 Jan 2008 Innlegg: 1094 Staðsetning: Reykjavík Canon 450 D
|
|
Innlegg: 01 Ágú 2010 - 19:50:21 Efni innleggs: |
|
|
| Völundur skrifaði: | Takk fyrir upplýsingarnar Danni. Þverársel hljómar ekki ósennilega, sérstaklega ekki ef maður hugsar um það hvað þétt er á milli bæja þarna. Reyndar er skrítið að þetta sé ekki á atlaskortunum.
Myndirnar koma alveg eldrauðar úr vélinni! |
Taktu mynd af grænu grasi og notaðu myndina í cwb. Þá sérðu munin.
Fékk ir filterinn á föstudaginn og virkar vel. Hér er dæmi Notaði picnick þar sem ég hef ekki aðgang að myndvinnsluforriti. Eina sem ég gerði er að breyta í s/hv. Myndin kom bláleit beint úr vél.
 _________________
 |
|
| Til baka efst á síðu |
|
 |
| Völundur
| 
Skráður þann: 01 Des 2004 Innlegg: 10873
|
|
Innlegg: 02 Ágú 2010 - 4:29:03 Efni innleggs: |
|
|
Já, þetta er snilld. einmitt mikilvægt að fá réttan WB beint úr vélinni. takk fyrir hugmyndina. _________________ - Spurðir þú þig spurninga í morgun? |
- Les photos des Völundes
- stuck in photos |
|
| Til baka efst á síðu |
|
 |
|