Eigandi og ábyrgðarmaður
Stjórn
Hlutverk stjórnarinnar er að sjá um kynningu á vefnum út á við og setja vefnum markmið og stefnur. Auk þess að vinna heildrænt í málefnum ljosmyndakeppni.is.
Netfang Stjórnar er stjorn ( hjá ) ljosmyndakeppni.is
Fræðsluráð
Fræðsluráð hefur það með höndum að vinna fræðsluefni fyrir vefinn og svo að skapa vettvang til að notendur geti miðlað þekkingu sín á milli.
Netfang Fræðsluráðs er fraedslurad ( hjá ) ljosmyndakeppni.is
Úrskurðarráð
Úrskurðarráð fer yfir ljósmyndir í keppnum, gengur úr skugga um lögmæti
mynda í samræmi við keppnisreglur.
Í úrskurðarráð sitja 5 meðlimir ljosmyndakeppni.is.
Netfang úrskurðarráðs er urskurdarrad ( hjá ) ljosmyndakeppni.is.
Umræðuráð
Umræðuráð starfar á spjallborði ljosmyndakeppni.is. Hlutverk þess er að ritstýra umræðum á spjallinu þannig að sem flestir hafi gagn af.
Netfang Umræðuráðs er umraedurad ( hjá ) ljosmyndakeppni.is
Keppnisráð
Keppnisráðið sér um að ákveða viðfangsefni keppna og vinna keppnislýsingar í kjölfarið.
Netfang Keppnisráðs er keppnisrad ( hjá ) ljosmyndakeppni.is
Ljósmyndakeppni.is opnaði í desember 2004 en þá hafði undirbúningsvinna staðið yfir í tæp 2 ár.
Skilmálar og keppnisreglur
Lesa hér
Markmið
Auka áhuga á ljósmyndun.
Aðstoða notendur við sjálfsnám í ljósmyndun.
Standa fyrir ljósmyndaferðum, sýningum og félagsskap.
Ýta undir sköpunargleði og ljósmyndun sem listgrein.
Fyrirkomulag á keppnum
Keppnir verða haldnar á um tveggja vikna fresti með viku kosningu um sigurvegara og að lokum verður úrslit keppninar kynnt á forsíðunni í amk viku eftir að keppni lýkur.
Allar keppnir með verðlaunum verða kostaðar af fyrirtækjum. Þau kosta verðlaun í keppnum og geta haft eitthvað að segja um þema keppnana.
Framtíðin
Vefurinn mun halda áfram í stöðugri þróun og hlusta á notendur vefsins um hvað vantar eða mætti betur fara.
|